Champions are made not born!!
LOKUN!Hlín og Hannes
http://barnaland.is/barn/78245/
Sendið mail varðandi lykilorð.
Á MORGUN, Á MORGUN!!Hlín og Hannes
Íslensk þýðing á frægasta lagi úr söngleiknum ANNIE hljómar í hausnum á mér því á morgun á Hannes minn, sá maður sem ég elska mest út af öllu lífinu AFMÆLI! JEY!!! Ég er svo mikið afmælisdýr að ég ræð ekki við mig, yfirdrátturinn er búinn að vera að hækka í samræmi við það því það verður allt brjálað að gera á morgun ![]()
Annars er ég komin í tveggja vikna frí fram að skóla, fyrir utan að ég byrja örugglega í félagsmiðstöðinni í næstu viku en það eru bara tvö kvöld í viku þannig að ég fæ nú að sofa á daginn og svona.
Verið að vinna í fæðingarorlofinu og það klárast á mánudaginn, finnst þetta einhvern veginn svo ótrúlega óraunverulegt að ég sé að sækja um þetta og finnst svona eins og þetta sé allt að koma.
Nú eigum við bara eftir að mála bleika herbergið áður en Fibbi kemur. Ætla nú ekki að leggja það á hann að vera í bleiku herbergi hérna hjá okkur. Hann fékk örugglega nóg af því að vera í Bubbi byggir herbergi allan síðasta vetur. Svo förum við í að gera herbergi prinsins tilbúið fyrir komu hans.
Erum að lenda í smá vandræðum með kerruna, vorum rukkuð morð og milljón fyrir flutning á honum hingað og fengum svo himinháann reikning frá tollinum! þannig að við fáum hann ekki fyrr en næstu mánaðarmót, enda liggur svo sem ekkert á. Þessi kerra varð bara soldið mikið dýrari en við ætluðum okkur, en ekkert sem við getum gert í þessu núna!
Elva sæta fer til Danmerkur á þriðjudaginn, ég verð að viðurkenna að þetta er erfiðara fyrir mig núna en þegar hún fór fyrst. Ég á eftir að sakna hennar óendanlega mikið enda sumarið búið að vera frábært með henni. Hún er líka endalaust spennt fyrir komu litla bróður og talar um það á hverjum degi.
En jæja, ætla að horfa á fitubollur eins og mig í BIGGEST LOSER! ég gæti kannski lært eitthvað af þeim, eða bara hætt að troða í mig súkkulaðirúsínum ![]()
2 mánuðir og 7 dögum betra.Hlín og Hannes
2 mánuðir í dag þangað til ég verð 25 ára... jibbý. 2 mánuðir og 7 dagar þangað til að litli prinsinn okkar kemur vonandi í heiminn! GETUM EKKI BEÐIÐ. Þreytan algjörlega farin að segja til sín og ég farin að sofa 10-12 tíma á nóttu. Gay-Pride gerði alveg út af við mig í gær og munaði litlu að liði yfir mig á Skólavörðustígnum þannig að við fórum bara heim. Verð víst að passa mig að nærast, sem ég er ekki búin að vera dugleg að gera.Kerran er á leiðinni til landsins, pöntuðum hana í gær þannig að þetta er svona allt að koma.
En jæja, mamma og pabbi komin í heimsókn að horfa á Samfélagsskjöldinn og ég í að baka vöfflur.
Kveðja úr Firðinum.
Yndisleg helgi að baki.Hlín og Hannes
Ég hefði í raun ekki getað trúað því að þessi helgi hefði getað verið svona æðisleg.Afmælið heppnaðist líka svona rosalega vel og voru um 70 manns saman komnir upp í Úthlíð í blíðunni. Dýrmætar stundir sem ég átti með fjölskyldunni minni.
Þegar við vorum að fara á mánudeginum þá gerðist soldið frábært. Við sátum inni og Axel og Elva voru að tala saman. Þau voru eitthvað að tala um mömmmur og pabbar og allt í einu segir Elva: "ég á tvo pabba og tvær mömmur" alveg eins og ekkert væri. Þetta bræddi mitt litla hjarta alveg gífurlega. Hannes hefur sagt mér að hún segi þetta stundum við hann en hún hefur aldrei sagt þetta beint við mig. Svarið sem hún fékk hins vegar á móti frá Axel var líka yndislegt, hann mátti nú ekki vera minni maður og sagði: "jámm, ég á 5 afa og 5 pabba"
En það eru minna en tvær vikur í að Elvan okkar fer aftur til Danmerkur. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!
En jæja, ekki lengra í bili... Er að horfa á Breiðablik-KR
Skatturinn er djöfull.Hlín og Hannes
Ekki það að ég þurfi að borga tilbaka í skatt heldur ákvað skatturinn að reikna ALLTOF litlar vaxtabætur til okkar Hannesar. Mismunurinn hleypur á mörgum tugum þúsunda og Hlín ekki sátt. Nú þurfum við að fara í þessi leiðindi að kæra til að fá það sem við eigum rétt á svo við getum keypt kerru og allt það sem okkur vantar inn á heimilið.Annars er allt gott að frétta héðan. Ég er farin að sofa kl. 10 á kvöldin og jafnvel fyrr. Ég er bara svo ofboðslega þreytt orðin. Ég er komin með áfasta bauga sem er ekki að gera sig.
29. vika byrjaði í gær, ég get sagt það með fullri vissu að eftirvæntingin leynir sér ekki. Eftir nokkra mánuði í stresskasti er ég öll að róast og hlakka ótrúlega til komandi verkefnis.
Nú er hins vegar Verslunarmannahelgi og við erum að fara að gera okkur tilbúin í smá ferðalag. Við ætlum að eyða því sem eftir er af helginni upp í Úthlíð með allri minni fjölskyldu, já þá meina ég ALLRI! Afi minn er nefnilega 70 ára á mánudaginn og ætlar hann að halda smá partý þar uppfrá. Hann leigði sumarbústað fyrir fjölskyldufólkið en partýdýrin verða í bústaðnum þeirra. Þetta verður endalaust gaman, er búin að byrgja mig upp af nammi og snakki og ætla að fara á þvílíkt nammi fyllerí að annað eins er ekki vitað um...
Jæja, ég þarf að skreppa í Bónus að versla hárbursta og LGG+
Góða helgi.
28 vikur and counting :)Hlín og Hannes
Jæja, nú er ég komin á síðasta þriðjung þessarar meðgöngu. Ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða, við komumst að þessu á 6 viku en núna eru allt í einu liðnar 22 vikur og hér erum við, ótrúlega spennt að fá lítinn prins til að eyða lífinu með.Hannes er búin að mála vísu á vegginn, ég á eftir að taka mynd en þegar ég læt verða af því þá fáið þið að sjá hvernig þetta kemur út. Þetta er alveg rosalega flott, eiginlega ofar okkar væntingum...
En það sem er helst að frétta af okkur er að við erum hætt við að fara til Danmerkur í nóvember. Íbúðin sem við ætluðum að leiga er bara alltof dýr og svo er náttúrulega ekkert gaman að ferðast þegar gengið er svona rosalega hátt og maður þarf að pæla í ölllum útgjöldum og leiðindum. Við ætlum frekar að fara öll saman í lengri ferð í vor þá til heitari staðar, ég segi ekki nei við því
En jæja, ég er ein í kotinu núna og ætla að njóta þess í botn. Ligg fyrir framan sjónvarpið og hef það kósý... já klukkan er 11 að morgni.
Jæja, dramakastinu lokið.Hlín og Hannes
Þessa dagana er það aðallega að frétta að ég er orðin ROSALEGA þreytt. Er að harka af mér í vinnunni og er ekkert að slaka á þar, en þegar ég kem heim er ég gjörsamlega búin á því. Ótrúlegt hvað er gaman í vinnunni en í fullri hreinskilni hlakka ég til að 4 vikum loknum þegar ég kemst í smá frí áður en næsta verkefni bíður mín, það er að segja barneignir og skóli, sem verður væntanlega mikið prógramm. En eins og ég segi, ég ætla að taka þetta á hörkunni og hugsa að með því að gera þetta núna eru bara 3 ár í að við förum að hafa það rosalega gott, þaes eftir að ég er búin með M.A.Við förum til ljósu á mánudaginn næsta. Finnst yndislegt að hitta hana, held að við getum ekki verið heppnari með ljósmóður. Ég get líka sagt það í hreinskilni að stressið og kvíðin við komandi hlutverki er að mestu leyti horfið. Hlakka rosalega til að fá litla prinsinn í fangið, enda ekki nema um 3 mánuðir í þetta. Við erum einmitt búin að fjárfesta í vagni, erum að bíða eftir vaxtabótum til að geta pantað kerruna af ebay. Þetta er svona allt að koma hjá okkur. Okkur vantar bara að klára herbergið, erum búin að finna vísu sem við ætlum að mála upp á vegg, þurfum bara að koma okkur í það...
En jæja, held að það sé ekkert meira að frétta í bili. Ætla að fara að hvíla mig, frekar þreytt eftir svefnlausa nótt. Læt fylgja eina bumbumynd sem var tekin um síðustu helgi. 27 vikur... Fleiri myndir eru eins og vanalega inn á myspace síðunni minni.

17. júlí 1994.Hlín og Hannes
Þetta er dagur sem ég mun seint gleyma. Amma mín, fallegasta konan í öllum heiminum, kvaddi þennan heim. Sumir undrast kannski á því hve langan tíma það tekur mig að jafna mig á þessum missi en hann er í raun mjög skiljanlegur, hún var besta amma sem nokkur getur óskað sér. Þó ég hafi ekki fengið nema 11 ár með henni þá fékk ég þau allavega og fann þessa skilyrðislausu ást sem hver einstaklingur á rétt á að upplifa. Enn þann dag í dag sakna ég hennar alveg óskaplega mikið og tóku hormónarnir öll völd í kvöld og leyfðu þessum söknuði svo sannarlega að fá útrás. Það er alltaf gott að gráta, en það sem er ennþá betra er að eiga einhvern sér við hlið sem er tilbúin að leyfa sér að gráta á öxl sinni.Takk allir sem hafa stutt mig á einhverjum tímapunkti yfir ævina. Takk Hannes fyrir að elska mig út af lífinu og þola mig þegar ég er í vondu skapi og óviðræðuhæf, takk fyrir að vilja eyða ævinni með mér og að gera líf mitt betra, ég myndi ekki vilja vera neins staðar annars staðar en einmitt hér... Takk mamma og pabbi fyrir að vera alltaf til staðar og hugsa um mig þegar mér líður illa og takk Eva fyrir að nenna að hlusta á mig og fyrir að vera besta systirin í öllum heiminum.
Jag är sjuk.Hlín og Hannes
Já, svona er þetta bara. Ég fór í vinnuna í dag, drulluslöpp og kom heim rúmlega 11 og var frekar ónýt. Svaf í 2 og hálfan tíma og er búin að vera lufsa í allan dag, eða allavega það sem eftir var af honum.Finnst þetta frekar slæmt því að ég verð í fríi á miðvikudaginn því að ég þarf að fara í sykurþolspróf, allt Evu syss að kenna
Nýji bíllinn okkar er æðislegur. Hann er ekkert smá æðislegur í alla staði og það spillir ekki fyrir að hann er með Túrbó vél þannig að í staðinn fyrir að vera 105 hestöfl er hann 150 hestöfl, það verður nú ekki leiðinlegt að fara á honum austur.
Fengum helling af fötum í gær, sem gerir það að verkum að minnsta stærðin (50-56) er komin. Þurfum ekkert meira í henni. Þurfum svona nokkra hluti í 62 eins og flísföt (vil fá 66° föt), buxur og peysur. Guðný og Óli redduðu þessu algjörlega og er held ég nánast allt sem við ætlum að fá lánað sem þau komu með í gær. Betty kom líka með föt þannig að við erum alveg vel sett fyrstu mánuðina. Nú er bara að fara í að kaupa vagn og setja filmur í bílgluggann þá er allt komið. Við bíðum bara eftir vaxtabótunum til að geta gert það. Svo er náttúrulega stærð 68 og upp úr en við höfum nægan tíma í að hugsa um það, það er ekki fyrr en kannski um 4-6 mánaða sem við þurfum að vera komin með eitthvað þá.
En jæja, ætla að vera eins og lufsa áfram fyrir framan sjónvarpið. Hannes er ótrúlega duglegur þessa dagana og er í því að gera hluti sem við erum búin að láta liggja á hakanum, eins og að hengja upp spegil inn í anddyri og er núna að setja upp spegilinn inn í herberginu okkar.
Takk fyrir að mæta í vöffluboðið okkar í gær, þetta var ekkert smá gaman.
Draumar...Hlín og Hannes
Vá hvað draumar geta verið skrítnir. Dreymdi draum um daginn sem sat í mér svo lengi að ég sendi konu email sem sérhæfir sig í draumráðningum og bað hana um að ráða í drauminn minn. Fékk email í dag.Hér er draumurinn:
Í framhaldi af þessu fórum við þrjú í bíltúr, bara rétt hjá fossinum og keyrðum upp í hlíð. Þegar við vorum á leið niður hlíðina þá rann bílinn svona rosalega til að hann rann niður hlíðina stjórnlaus. Hann stoppaði samt í miðri hlíð og við komumst út auðveldlega og náðum að komast niður hlíðina niður í læk/vatn sem þar var fyrir neðan en komumst auðveldlega upp úr honum og fórum að fossinum og biðum þar og töluðum við fólk sem stóð þar hjá. Svo vaknaði ég...
Þetta var svarið sem ég fékk:
Það er verið að segja þér að þú eignist dreng sem mun færa þér mikla gleði og að það muni koma sérstök sál sem mun vegna vel í lífinu. Eitthvað ert þú samt ekki tilbúin að eignast drenginn (seinni hlutinn) eða
ert hrædd á meðgöngu, það að renna niður á við er neikvætt en það góða er að þið stoppið í miðri hlíðinni og að það sé vatn/lækur er það andlega og góða. Svo eruð þið komin að fossinum sem er fæðingin og þar er fólk sem segir þér að þið verðið ekki ein og þið fáið þann stuðning og hjálp sem þið þurfið.
Ég sendi henni ekki neitt nema drauminn og gefur því augaleið að mér fannst frekar krípí að fá þetta svar. Því þetta á svo sannarlega við! Hahaha... sendi henni annan draum sem mig er búið að vera að dreyma síðan við Hannes byrjuðum saman og bíð eftir svari.
Annars eru aðrar stórar fréttir af okkur. Þannig er mál með vexti að við erum búin að kaupa okkur nýjan bíl. Og það ekkert slor, ekkert annað en draumabílinn minn Skoda Oktavíu. Ég er í 7unda himni og get ekki beðið eftir að fá hann. Hann er 2005 módel og er keyrður litla 37 kílómetra. Fáum hann örugglega á morgun og því verður eitthvað rúntað um helgina

26 vikur á morgun. Jibbý!!!